Sendum um land allt
Sendum um land allt
Karfa 0
Leikskólaföt 2
Garn í gangi

Leikskólaföt 2

Venjulegt verð 2.990 kr 0 kr Verð á einingu per
með VSK
Höfundar: Eva Mjöll Einarsdóttir, Heiðrún Erla Guðbjörnsdóttir, Sigurlaug Elín Þórhallsdóttir, G.Dagbjört Guðmundsdóttir

 

Leikskólaföt 2 geymir úrval prjónauppskrifta fyrir leikskólakrakka. Áhersla er lögð á hlý og þægileg föt fyrir börn frá eins árs og upp að sex ára aldri.

Meðal efnis í bókinni eru uppskriftir að sokkum, húfum, vettlingum, hefðbundnum peysum og hettupeysu. Verkefnin eru fjölbreytt, allt frá einföldum uppskriftum fyrir byrjendur til aðeins flóknari uppskrifta fyrir vant prjónafólk.

Eins og í fyrri bók Prjónafjelagsins, Leikskólafötum, er lögð áhersla á að hægt sé að velja um margs konar garn, bæði íslenskt og erlent, og er íslenska ullin oftast valkostur.

Höfundarnir eru reyndar prjónakonur sem hafa hannað og prjónað barnaflíkur í fjölmörg ár.

Leiðrétting á bls. 29

Leiðrétting á bls. 24.


Deilið vöru