Ská stroff
12.3 kl 18-21
Stroff á ská má oft sjá á lettneskum vettlingum en þau má einnig nota til að punta upp á hvað flík sem er. Til dæmis gera þau skemmtilegan svip á húfur eða peysur. Það má leika sér endalaust með þessa gerð af stoffum. Þau eru falleg einlit eða með fínlegum röndum og svo er hægt að nota marga liti og gera þau að áberandi hluta af flíkinni.
Kenndar eru mismunandi útfærslur af stroffum á ská og aldrei að vita nema við náum einnig að læra einhver skemmtileg uppfit eða önnur trix ef tími vinnst til.
Þátttakendur fá ljósrit með leiðbeiningum og gott er að taka með
glósubók og skriffæri
Efni og áhöld
Þrjá eða fleiri liti af ullargarni og prjónar í stærð sem hæfa garninu.
Til dæmis Kambgarn, Pernilla eða annað í svipuðum grófleika og prjóna nr 2,5-3..
Um að gera að nota það sem til er og prjónastærð sem ykkur finnst gott að vinna með.Prufur eru prjónaðar í hring svo takið með sokkaprjóna eða þá prjóna sem ykkur finnst best að nota.
Kennari Dagný Hermannsdóttir
Dagný Hermannsdóttir er textílkennari að mennt og forfallin prjónakona. Hún hefur farið margar prjónaferðir til Lettlands, fyrst til að sækja námskeið og svo einnig sem fararstjóri. Auk þess hún kennir hún lettneskar prjónaaðferðir á námskeiðum.
Þegar hún er ekki að prjóna sinnir hún skyldum sínum sem Súrkálsdrottning :)