Skip to product information
1 of 9

Garn í gangi

Aðventudagatal

Aðventudagatal

Regular price 34.900 ISK
Regular price 0 ISK Sale price 34.900 ISK
Sale Sold out
Taxes included.

Ekki hélduð þið að við værum að gleyma að hanna Aðventudagal fyrir ykkur í ár?

Aldeilis ekki! Það eina sem við klikkuðum á er að við ætluðum að hafa 2 valmöguleika, 1 með Írisar lita pallettu og 1 með Sveinu lita pallettu. Þær voru bara of líkar 😅

Það verður því 1 valmöguleiki en nokkrir valmöguleikar á fylgiþræði með sem gerir það að verkum að 1 lita palletta getur breyst í nokkrar!

Þetta verða 24 smáhespur og svo val um lit á fylgiþráð. Smáhespurnar verða úr non superwash ull (merinoblanda) og fylgiþráðurinn verð merino lambsullinn frá okkur.

Það verður uppskrift af værðarvoð eftir Sveinu Björk og Íris mun lita raða af sinni alkunnu snilld. Það verða einhverjar smá auka gjafir svona hér og þar en verður haldið í lágmarki til þess að halda verðinu niðri.

Dagatalið verður sent til ykkar í tíma fyrir 1.12 og verður uppskriftin hönnuð þannið að hægt verður að prjóna úr 1 smá hespu á dag og verður teppið því nánast tilbúið fyrir jól.

Viljum samt ekki segja of mikið, það verður nú að vera smá spenna í gangi ;-)

Dagatalið mun koma í sölu 4.8 og sama dag mun koma út nýr þáttur á Youtube og munum við útskýra þetta allt saman betur fyrir ykkur þá.

ATH einungis verða 20 eintök í boði.

View full details