Prjónað af ást
Prjónað af ást
Regular price
4.300 ISK
Regular price
0 ISK
Sale price
4.300 ISK
Unit price
/
per
Höfundur: Lene Holme Sansøe
Í handprjónaðar flíkur handa börnum er lögð mikil ást og umhyggja og fátt er jafn gaman að gefa.
Prjónað af ást inniheldur sjötíu uppskriftir að flíkum og fylgihlutum handa börnum, frá fæðingu upp að 8–10 ára aldri. Höfundurinn sækir innblástur í norræn hannyrðablöð og -bækur frá því um miðja síðustu öld en hefur lagað uppskriftirnar að þörfum nútímans.
Verkefnin í bókinni eru fjölbreytt, stór og smá; húfur, hálstau og ennisbönd ásamt stærri flíkum eins og peysum, jökkum, kjólum, buxum og öðrum mjúkum og þægilegum fatnaði.
Lene Holme Samsøe er þekktur danskur hönnuður sem hefur komið að útgáfu fjölmargra prjónabóka.
Ásdís Sigurgestsdóttir og Guðrún B. Þórisdóttir þýddu.